Jógaferð í Garðsárdal
DAGS
Kl.
10-12
BROTTFÖR Kl.
13
ERFIÐLEIKASTIG
Fararstjórn:
List of services
List of services
Lýsing
16. maí, laugardagur
Brottför kl. 10 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23
Safnast saman í bíla ef vill. Þeir sem þiggja far með öðrum þurfa að taka þátt í bílakostnaði.
Fararstjórn: Þuríður Helga Kristjánsdóttir
Ekið fram í Garðsárdal. Létt ganga um Garðsárreit þar sem þátttakendur nota skilningarvitin til að dýpka upplifun sína af náttúrunni.
Gangan fer að mestu fram í kyrrð þar sem tækifæri er veitt til að rækta sál og líkama í fallegri náttúru Eyjafjarðar með gönguhugleiðslu
ásamt núvitundar- og öndunaræfingum. Ferð við flestra hæfi.
Þátttaka ókeypis
Búnaður
Gönguferðir: 1 skór
Léttar og stuttar ferðir: Stuttar dagleiðir, 4 - 6 klst. Mest gengið á sléttlendi. Engar eða litlar ár. Léttur dagpoki. Flestum fært.
Nauðsynlegur búnaður er meðal annars:
Góðir skór sem ætlaðir eru til dagsferða og jafnvel göngustafir.
Bakpoki (dagpoki) gott að hann sé með bakpokahlíf
Sólgleraugu, sólarvörn og varasalvi
Sjúkragögn, hælsærisplástur, teygjubindi, verkjalyf og annað smálegt
Viðeigandi fatnaður, húfa, vettlingar, hlífðarföt og regnföt
Vatn/drykkir og nesti til dagsins (einnig göngunasl)
Alltaf gott að hafa í bakpokanum: Flugnanet, legghlífar, auka sokkar og buff

